Acta Critica

vegur

 

logo

 

 

 

 

©2010 Johann M. Hauksson

 

Haukur Jóhannsson: "Bjarnaræta eina öld. Lítilræði um ritstörf og afdrif Jans Welzls, norðurbúa og sagnaþular"

Grein þessi fjallar um afdrif og ritstörf Jans Welzls, sem fæddist í Zábřeh á Mæri árið 1868 en dó í Dawsonbæ í Kanada 1948. Tvo fyrstu áratugi tuttugustu aldar átti hann sér höfuðból á Nýjusíbiríueyjum um 1000 km norðan við heimskautsbaug, og árið 1928 voru fyrstu bækur með frásögnum af dvöl hans þar gefnar út, fyrst á tékknesku, síðan frönsku, og 1932 komu þær út á ensku. Sannleiksgildi frásagnanna var dregið í efa, einn efasemdarmanna var Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður.
Segir hér frá ritdeilum um frásagnir Jans og frá eftirgrennslan um afdrif hans. Auk framlags Vilhjálms ber hæst grein í bókmenntatímariti Vísindaakademíu Tékkóslóvakíu árið 1990, “Missagnir um Jan Eskymo Welzl og verk hans” eftir Pavel Voda, og safnrit sem Rudolf Krejčí tók saman, “Ferð umhverfis heiminn 1893 - 1898”, en það kom út 1997.