Acta Critica

veidiv

 

logo

 

 

 

 

 

©2010 Johann M. Hauksson

 

Tilgangur tímaritsins

  1. Einn helsti tilgangur Acta Critica er að bjarga frá glötun góðu efni.
    Oft skrifa nemendur úrvals ritgerðir sem síðan daga uppi, ólesnar af öllum
    nema kennara viðkomandi. Tilgangur tímaritsins er að gera slíkt efni
    opinbert og stuðla að lesningu þess. Það getur verið góður kostur fyrir
    höfunda að birta slíkt efni í Acta Critica, því lögð er mikil áhersla á
    gæði og geta lesendur gengið að því vísu að það efni sem hér birtist sé
    vel unnið.
  2. Einnig er tilgangur tímaritsins að auðvelda fólki að kynna sig og efni
    sitt. Það getur komið sér vel fyrir fólk að geta bent á birt efni þegar
    sótt er um stöður, eða annað slíkt. Acta Critica er viðurkennt tímarit
    (hefur alþjóðlegt ISSN númer) og getur því verið heppilegur vettvangur til
    þess að koma efni sínu á framfæri.
  3. Einnig er gott fyrir höfunda að geta bent á efni sem sá sem vill meta
    höfund efnisins getur lesið á aðgengilegan hátt. Með því að birta á ensku,
    svo dæmi sé tekið, verður mögulegur lesendahópur nokkur þúsund sinnum
    fjölmennari en ef birt er á íslensku.